mynd.jpg
Arnar Þór í flokk ofurfiskimanna - 1.329 tonn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 19 Október 2009 11:23
Á aðalfundi LS sem nú stendur yfir var upplýst að Ragnar SF-550 frá Hornafirði hefði orðið aflahæstur smábáta á sl. fiskveiðiári með 1.329 tonn.  Skipstjóri á Ragnari er Arnar Þór Ragnarsson.   Í máli framkvæmdastjóra LS kom fram að það hefði borið til tíðinda að hornfirskur smábátur hefði nú rofið áralanga einokun bolvískra smábáta um mesta afla smábáta á hverju ári.
IMG_8317_2.jpg

Örn óskaði  Arnari Þór og áhöfn hans til hamingju með þennan frábæra árangur og sagði hann vera kominn í flokk ofurfiskimanna innan Landssambands smábátaeigenda eftir gríðarlega harða keppni við Geira á Sirrý (Sigurgeir Þórarinsson), sem hampaði titlinum mesti fiskimaður smábátaflotans 2008, það munaði aðeins 4 tonnum á þeim félögum.  

Örn færði Arnari blómvönd frá landssambandinu af þessu tilefni og fundarmenn fögnuðu með dynjandi lófaklappi.
 
Aflafréttir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 07 Október 2008 10:09
Meiningin er að setja inn aflafréttir hér á vefinn, annað slagið a.m.k.
 
Nýr vefur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 01 Október 2008 09:20

Nú er unnið að nýjum vef fyrir útgerðarfélagið Nónu ehf.  Á vefnum verða upplýsingar um bátana Ragnar og Guðmund, myndir, myndbönd o.fl.